Hér er uppskrift af mjög góðum og einföldum eftirrétt. Uppistaðan er rjómi og epli og síðan setur þú það sem til er. Til dæmis súkkulaðirúsínur, marengs eða litlar vöfflur með hunangi. Punkturinn yfir i-ið er síðan hlynsýróp (helst óblandað) ef það er til. Það gefur mjög gott bragð.