Skyrinu er pakkað vel inn í smjörpappír/bökunarpappír og pakkinn látin í botn á súrsunarfötunni.
Í fötuna er raðað slátri og hrútspungum (pressuðum) inn á milli.
Mysunni hellt yfir. Blóðmörssneiðar settar út í því rúgmjölið viðheldur sýrustiginu.
Lokað og geymt í kæli.
Súrsunartími 4-6 vikur. En ekki verra að setja í súr tímanlega t.d. fyrir þorra.
Ágætt að skipta um mysu eftir ca 3 vikur.
Andrés Hugo Sigurðsson, Hveragerði