Krækiberjasaft

0.0/5 hattar (0 atkvæði)

Ingredients

  • 1 lítri krækiberjasaft
  • 750 g sykur
  • 1 tsk sítrónusafi

Directions

    1. Ef það er berjapressa á heimilinu þá er hún notuð, annars eru berin sett í matvinnsluvél og maukuð vel. Síðan þarf að sigta berin og pressa vel til að ná öllum safanum úr. Best er því tví sigta safann. 
    2. Hitið saft og sykur að suðu, blandið sítrónusafa út í. Setjið í hreinar heitar flöskur og lokið. Einnig má láta sykurinn leysast upp í saftinni án þess að hita hana. .

     

     

     

     

     

     

    Þessi uppskrift birtist í 3.tbl Húsfreyjunnar 2020 og er frá Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur, fyrrum skólameistara Hússtjórnarskólans í Reykjavík