Rabarbarinn er þvegin og skorin í 3ja cm langa bita. Sítrónan er þvegin og hýðið rifið og safinn kreistur. Sett i pott ásamt rabarbarabitum, vatni, hrásykri og kornunum úr vanillustöngunum. Látið sjóða við vægan hita í ca. 15 mínútur eða þangað til rabarbarinn er orðinn mjúkur.
Hellt í gegnum sigti í hreint ílát og síðan á sótthreinsaðar flöskur. Loka vel og best er að geyma á köldum stað.
Rabarbaramaukið sem fæst þegar búið er að sigta frá, er upplagt að geyma í vel lokuðu plastíláti í kæli og nota út á ís, í heilsudrykki eða út á mjólkurmat.
Uppskriftin gefur um 2,5 L af saft.
Hér til hliðar finnur þú fleiri uppskriftir úr rabarbara. Njótið vel!