Kjötið er soðið í u.þ.b klukkustund. Saltað í pottinn. Gulrætur og rófur skornar niður og soðnar í 20 mín. Kálið er er skorið í strimla og snöggsoðið. Grjónin soðin í vatni og síðan bætt í kjötsoði og grænmetissoði, laukurinn soðinn heill í súpunni. Súpujurtum er bætt í og súpan krydduð eftir smekk. Að lokum er haframjölinu bætt út í og soðið í smá stund. Soði og kryddi bætt útí, eftir smekk.
Þessi uppskrift er úr "Hrunaréttir" útgefið af Kvenfélagi Hrunamannahrepps.