Blandið öllu saman í marineringuna.
Úrbeinið lambalærið (eða kaupið úrbeinað læri) og leggið í marineringu í 2 - 4 klst.
Saxið sveppi og spínat smátt og steikið upp úr olíu. Setjið í sigti og látið vökvann renna af svo fyllingin verði ekki of blaut.
Hrærið steiktu grænmetinu saman við rjómaostinn og kryddið.
Takið kjötið úr marineringunni, setjið fyllinguna í miðjuna og vefjið kjötið þétt saman með garni eða setjið net utan um rúlluna. Kryddið með salti og pipar og timian. Brúnið rúlluna á öllum hliðum á pönnu, setjið í ofn við 170°C í 1 klst.
Berið fram með soðsósu og bökuðum eða brúnuðum kartöflum.
Verklýsing fyrir soðsósu:
Saxið lauk og hvítlauk smátt, léttsteikið i olíu. Bætið soði, hvítvíni og kryddi saman við og sjóðið um stund. Þykkið með sósujafnara og smjöri. Kryddið.
Tilvalið að hafa rauðkálssalat sem meðlæti.
Þessi uppskrift birtist í 1. tbl Húsfreyjunnar 2012