Gerið er leyst upp í volgri mjólk ásamt sykrinum í stórri skál, þangað til það byrjar að freyða. 
 Þá er salti og bræddu smjöri bætt út í. 
 
Mjölinu bætt út í smátt og smátt þangað til deigið verður meðfærilegt. Þá er því skipt í 3 hluta, hver hluti flattur út í kringlótta köku sem skorin er í 8 geira (eins og pissusneiðar). 
 
Hverri sneið rúllað upp í horn, byrjað á breiðasta endanum. Sett á plötu með mjóa endan niður. Penslað með eggi sem hefur verið hrært út með smá af köldu vatni.
 
Bakað í forhituðum ofni á 260° í ca 12 mínútur. 
 
 Borin fram með smjöri, osti eða ávaxtamauki.
 Má frysta.