Rabarbarinn er skorinn í bita og dreift á botninn á eldföstu móti. Sykri og kanel blandað saman og stráð yfir, því næst púðursykri. Formið er sett í ofn og hitað við 180˚ C í 10 mín.
Egg og sykur eru þeytt vel saman, hveiti, lyftidufti og hnetum eða kókosmjöli síðan bætt við. Blöndunni er hellt yfir rabarbarann í forminu og kakan bökuð á neðstu rim við 180° C í 20-30 mín. Borið fram með ís eða þeyttum rjóma.