Negulkökur

3.0/5 hattar (3 atkvæði)

Ingredients

  • 250 g hveiti
  • 250 g púðursykur
  • 125 g íslenskt smjör (lint)
  • 1 stk egg
  • 1,5 tsk lyftiduft
  • 0,5 tsk matarsódi
  • 1 tsk engifer
  • 0,5 tsk kanill
  • 0,5 tsk negull

Directions

  1. Öllu skellt saman í skál og hnoðað rólega saman. Kælt í smá stund. Gerðar litlar kúlur og settar á bökunarplötu og síðan þrýst á með fingri eða gaffli.

  2. Bakað við 180° í 8-10 mín.