Smjör og mjólk hituð saman í potti og köldu vatninu bætt út í þannig að vökvinn verði um 37° heitur og gerið látið leysast upp í honum.
Sett í hnoðunarskál. Mjöli, sykri, salti og kryddi bætt í. Hnoðað vel og ávextir og hnetum blandað síðast saman við.
Breytt yfir deigið og látið hefast í 1 klst.
Hnoðað upp aftur í höndum og sett í vel smurt smelluform og látið hefast þar í 1 ½ - 2 klst.
Brauðið penslað með bræddu smjöri og sykri stráð yfir.
Bakað í ca. 45 mínútur við 185° hita, þá er brauðið tekið varlega úr forminu og bakað áfram í 10 mínútur til að fá skorpu á það.
Látið kólna á bökunargrind.