Aðferð við bringur: Hrærið saman rjómaosti, sólþurrkuðum tómötum, paprikupestó og basiliku. Skerið vasa í bringurnar og setjið fyllinguna þar í. Kryddið með salti og pipar og vefjið parmaskinkunni þétt utan um hverja bringu. Setjið inn í 180°C í 40- 50 mínútur eða þar til bringurnar eru fulleldaðar.
Aðferð við Steinseljusósuna: Steikið lauk og sveppi upp úr smjöri. Hellið rjóma út á pönnunaog bætið kjúklingateningnum saman við ásamt saxaðri steinselju. Leyfið að malla í dágóða stund. Takið af soðinu sem hefur lekið úr kjúklingabringunum og bætið í sósuna.
Þessi uppskrift birtist í jólablaði Húsfreyjunnar 2014