Öllu blandað saman fyrir utan mjólkina sem er hituð og sett síðast í. Hrært/ hnoðað saman og skipt í 10 jafna hluta.
Hver hluti er hnoðaður milli handann og gott er að bera olíu á hendurnar til að deigið festist ekki.
Flatt út í kringlóttar kökur, pikkaðar með gafli og bakaðar strax á rafmagnshellu eða pönnu.