Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í stóra skál. Bætið við vatni og mjúku smjörinu. Vinnið saman þar til verður deig og hnoðið í 5 mínútur. Gerið langa rúllu og skiptið henni síðan í 12 hluta. Fletjið hvern hlut út í pappírsþunna köku á hveitistráðu borði. Bakið hverja köku á pönnu án olíu á meðalhita í tvær mínútur hverja hlið. Látið kólna undir diskaþurrku svo þær verði ekki harðar.
Fyllið með hverju því sem hugurinn girnist.
Þessi uppskrift er fengin hjá: Finlands svenska Marthaförbund