Grænmetið (allt nema fersku tómatarnir) er skorið í bita og mýkt í í góðri olíu í potti. Á ekki að brúnast.
Niðursoðnu tómötunum hellt út í og kryddi, (nema salti og pipar) vatni og soði bætt út í.
Látið sjóða við vægan hita í ca 15 mín. Saltað og piprað ef þarf.
Fersku tómatarnir skornir í báta og settir út í um leið og rétturinn er borin fram.
Borið fram með soðnum pastaskrúfum eða hrísgrjónum og jafnvel góðu brauði.
Einnig tilvalið sem meðlæti með kjöt- eða fiskréttum.