Leggið lasagna plöturnar í kalt vatn, látið þær ekki liggja þétt saman. Skerið laukinn og brúnið í smjöri á pönnuni. Setjið nautahakkið út á pönnuna og brúnið með lauknum. Bætið tómatsósu, kryddi og rjóma út á pönnuna og látið krauma við vægan hita með lok á pönnunni. Bræðið smjörið í sósuna og blandið hveitinu út í. Jafnið með mjólkinni og bætið saltinu út í. Látið sósuna sjóða í um það bil fimm mínútur. Smyrjið eldfast mót. Setjið sóu á botninn á mótinu, þá lag af lasagna plötum, þá sósu og þar ofan á hakkið. síðan sósu ofan á hakkið, þá lasagna plötur og afganginn af sósunni. Dreifið ostinum yfir sósuna og bakið í ofni við 200°C í 20 - 30 mínútur. með þessum rétti er gott að bera fram ferskt hrásalat.
Þessi ítalski réttur er orðinn jafnalþjóðlegur og pítsan. til að auka hollustuna má nota hvítkál í staðinn fyrir lasagna plöturnar. Einnig er upplagt að nýta frysta afganga af steiktu hakki og/eða spaghettísósu í formið.
Þessi uppskrift er frá Drífu á Uppsölum í Kvenfélagi Akrahrepps upp úr uppskrifta bókinni Næring og nautnir sem Kvenfélag Akrahrepps gaf út.