Blandið öllum þurrefnum saman, á borð eða í skál. Myljið smjörlíkið saman við. Vætið í með súrmjólk og sundurslegnum eggjum. Takið hluta af deiginu og fletjið út í þykka köku og mótið kleinur. Steikið.
Þessi uppskrift birtist í 3. tbl Húsfreyjunnar 2020 og er frá Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur, fyrrum skólameistara Hússtjórnarskólans í Reykjavík