Bræðið smjörið og látið laukinn mýkjast í því í um 5 mínútur. Bætið tómötunum í og leyfið að malla í um 15 mínútur. Saltið piprið og hellið 750 ml af vatni yfir, bætið kartöflunum í og látið krauma í 1 klst. Maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél, hitið hana með rjómanum og berið fram með osti og brauðteningum.