Hitið mjólk og smjör saman þar til það er fingurvolgt eða um það bil 37°C. Setjið ger út í mjókina og hrærið þar til það er uppleyst. Blandið hveiti, salti og sykri saman í skál, vætið með gerblöndunni og hnoðið samfellt deig. Breiðið plastfilmu eða viskastykki yfir skálina og látið deigið hefast u.þ.b. klukkutíma eða í kæliskáp yfir nótt. Setjið bökunarpappír á ofnplötu.
Formið bollur og raðið upp í jólatré, hafið aðeins bil á milli bollanna því þær eiga eftir að hefast og síðan stækka enn meira við bakstur. Látið deigið hefast aftur á plötunni í 30 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.
Hitið ofninn í 220°C . Penslið deigið með eggi og stráið skrautsykri yfir. Bakið í miðjum ofni í 8-10 mínútur.
Þessi uppskrift birtist í Húsfreyjunni 4. tbl 2014