Smjörlíki og sykur er hrært vel saman. Skipt yfir í hnoðspaða ef þetta er gert í hrærivél, annars má hnoða deigið á borði. Þurrefnum blandað saman og smjörhrærunni hnoðað saman við ásamt mjólkinni.
Deigið kælt um stund.
Flatt út í 3 kökur jafnstórar og bakaðar á bökunarplötu og bakaðar við 190° hita í ca 15-20 mín. Gott að fylgjast með hvað bakstrinum líður svo botnarnir verði ekki of harðir.
Botnarnir lagðir saman volgir með sveskjusultu eða annarri góðri sultu.