Setjið kjúklinginn í glerskál eða á djúpan disk.
Látið hráefnið í marineringuna í matvinnsluvél og búið til mauk. Nuddið maukinu yfir allan kjúklinginn. Hyljið og geymið í ísskáp í allavega sex klukkustundir eða yfir nótt.
40 mínútum áður en þú byrjar að grilla.
Settu allt hráefnið sem fer í sósuna í skál og helltu 125ml af sjóðandi heitu vatni yfir, hrærðu vel í og settu til hliðar.
Skelltu tréspjótunum í vatn í minnst 30 mín.
Taktu kjúklinginn út úr ísskápnum allavega 30 mín áður en þú byrjar að grilla. Þræddu kjúklingabitunum upp á spjótin, þrjá bita á hvert spjót.
Grillun
Stilltu grillið á hæstu stillingu, leyfðu því að hitna vel.
Grillaðu spjótin í 8 - 10 mínútur, eða þar til þau eru steikt i gegn. Snúðu þeim oft.
Berðu fram með Lime og Chillí sósunni og njóttu með fjölskyldu og/eða vinum.