Brauðið er lagt í bleyti, þannig að brauðið blotni vel upp, gjarnan yfir nótt og geymt í ísskáp.
Sett í pott, vatni bætt við og soðið við vægan hita þangað til brauðið leysist vel upp, (ágætt að stappa með kartöflustappara) og súpan/grauturinn verður jafn og kekkjalaus.
Rúsínur og kanilstöng settar út í og soðið áfram og þynnt með maltölinu.
Sykur og sítrónusafi ásamt sítrónusneiðum bætt í. Smakkað til með meiri sykri ef vill og örlitlu salti.
Þynnt með meira af maltöli eftir smekk.
Borin fram með þeyttum rjóma.