Hitið vatnið að suðu, setjið saltið og súpukraftinn út í ásamt kjötinu og sjóðið í 25 - 35 mínútur eftir því hvort kjötið er í smábitum eða á beini. Hreinsið grænmetið. Skerið rófuna æi bita og setjið út í ásamt hrísgrjónum og lauk. Látið sjóða áfram í 10 mínútur, setjið þá gulrætur og hvítkál út í og látið sjóða áfram í 15 - 20 mínútur. Smakkið til og stráið saxaðri steinselju yfir. Borið fram með soðnum kartöflum. Athugið að súpan er bragðmeiri ef kjötið er með beini.
Þessi uppskrift birtist í 3. tbl Húsfreyjunnar 2020 og er frá Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur, fyrrum skólameistara Hússtjórnarskólans í Reykjavík