Blettahreinsun á sólarvörn

Það geta komið blettir eftir sólarvörnina í fötin okkar sem sérstaklega erfitt getur verið að fjarlægja.

Það er því miður ekki eitt ráð sem virkar á allar flíkur eða alla sólarvarnabletti.  Fer allt eftir hvaða efni eru í flíkinni og hvaða efni eru í sólarvörninni.   Það eru því nokkur ráð sem þú gætir þurft að prófa áður en árangur næst.

Byrjaðu fyrst á því að leggja flíkina í bleyti með blettahreinsir sem er sérstaklega gerður til að fjarlægja fitu og olíu.  Hér gæti jafnvel þvottalögur dugað. Einnig má prufa að leggja flíkina í borðediksblandað volgt vatn í nokkra klukkutíma. Að þessu loknu skaltu setja flíkina á hæsta mögulega hitastig á þvottavélina einsog flíkin þolir og þvottamerkið segir til um.

Áður en þú þurrkar flíkina í þurrkara skaltu skoða vel hvort bletturinn sé farin. Ef flíkur eru þurrkaðar við hátt hitastig í þurrkara gætir þú verið að festa blettinn endanlega í þvottinum. Þetta á við alla bletti.

Ef bletturinn er enn til staðar eftir blettameðhöndlunina hér að ofan þá gæti verið ráð að nota sterkan blettahreinsir með ensímum, hella yfir blettina og bursta létt yfir með mjúkum bursta.  Ef um viðkvæma flík er að ræða eða ofangreint hefur ekki dugað þá gæti eina leiðin verið að fara með flíkina í næstu efnalaug.

Gangi þér vel

 

summer 3490611 640

  • Tuesday, 21 ágúst 2018