Eggin og flórsykurinn er þeytt saman þangað til blandað verður ljós og létt í sér.
Vanillu bætt í ásamt örliltu salti. Þá er rjóminn þeyttur sér og öll blandað varlega saman í lokin.
Fryst í vellokuðu íláti.
Gott er að hræra af og til ísnum á meðan hann er að frjósa.
Það má líka blanda t.d. smátt söxuðu súkkulaði út í hræruna. Nú eða bragðbæta með appelsínu- og sítrónusafa, líkjör eða einhverju sem fólki finnst gott.
Borin fram með ískexi, ferskum ávöxtum og sósu eftir smekk.