Ofninn er stilltur á 180°c
Rifsberin sett í ofnfast fat ásamt sykri, appelsínusafa og hýði. Álþynna breidd yfir og bakað í 45 mín.
Berin eru sett í hakkavél eða matvinnsluvél og maukað. Hratið er síað frá.
Líkjörnum er blandað saman við berjasafann og hrært. Setjið blönduna í skál með loki eða í ísvél. Athugið að það þarf að hræra af og til í blöndunni á meðan hún frýs, til að hún verði ekki að klaka ef ísvélin er ekki til staðar.