Ofnsteiktar sætar kartöflur

4.0/5 hattar (3 atkvæði)

Ingredients

  • 600 g sætar kartöflur
  • 2 hvítlauksgeirar (ef vill)
  • 4 greinar ferskt timjan
  • eða 1 tsk þurrkað timjan
  • 2-3 msk matarolía
  • salt
  • smjör

Directions

  1. Kartöflurnar eru afhýddar og skornar í sneiðar eða teninga. Hvítlauksgeirarnir sneiddir í þunnar sneiðar. Sett í eldfast fat og olíu hellt yfir. Hrært vel í þannig að olían dreifist vel. Kryddið saxað og dreift yfir eða stráð yfir ef notað er þurrkað.
    Nokkrum smjörklípum er dreift ofan á og síðast grófu salti.

  2. Bakað í 200° heitum ofni í ca 40 mínútur eða þangað til kartöflurnar eru meyrar.