Ef notaðar eru ósoðnar baunir þarf að leggja þær í bleyti í 8-10 klst.
Vatninu hellt af þeim og þær soðnar í ca 1 klst.
(Dósabaunum er hellt í sigti og skolaðar úr köldu vatni).
Laukur og hvítlaukur saxaður og mýktur í heitri olíu á pönnu.
Sveskjur og döðlur skornar fremur smátt og þeim ásamt trönuberjum, tómötum, Garam masala og eplasafa bætt á pönnuna.
Látið sjóða í 20 mínútur við vægan hita.
Kjúklingabaununum bætt saman við, saltað og piprað og hitað í gegn.
Furuhneturnar léttristaðar á heitri pönnur og dreift yfir réttinn þegar hann er borinn fram, ásamt góðu brauði og grænu salati.