Kartöflurnar eru rifnar gróft, settar í sigti og safi pressaður úr þeim, ekki þó þannig að þær verði alveg þurrar.
Settar í skál og gróft rifnum lauknum ásamt afgangi af hráefnum hrært varlega saman við. Kúmenfræin marin aðeins með hnífsblaði áður en þau eru sett saman við.
Olían hituð á pönnu og bakaðir klattar við meðalhita þangað til þeir eru gullnir og fallegir á litinn. Ágætt að dreypa smávegis af olíu yfir þá þegar steikingu lýkur.
Bornir fram með kotasælu m/hvítlauk, soðnum bygggrjónum og smáttsaxaðri agúrku.