Blandið fyrst saman þurrefnum og bætið við volgu vatni og olíunni. Hnoðið deigið saman í höndum eða hrærivélinni. Ef það verður of þurrt er bætt við meira vatni. Látið deigið hefast í 20 - 30 mín á eldhúsbekknum, eða í kæliskáp yfir nótt. (Ef ætlunin er að láta það hefast í kæliskáp yfir nótt, er notað kalt vatn!)
Þegar deigið hefur hefast er því slegið aðeins saman og skipti í 8 jafnstóra hluta. Hver hluti er flattur út í hring. Setjið fyllinguna á hálfan hringinn. Penslið kantana með vatni eða pískuðu eggi, leggið saman hálfmánana og klípið kantana vel saman til að loka. Penslið hvern hálfmána með ólífuolíu.
Leyfðu hugmyndafluginu og afgöngunum sem þú átt að ráða ferðinni með hvað þú notar sem fyllingu.
Sniðugt að gera tvöfalt magn af deigi og gera marga hálfmána í einu til að eiga í frystinum.