Smjörlíki og flórsykur þeytt vel saman, egginu bætt í og þeytt meira. 
 Hveiti og vanillusykur hrært rólega út í og að síðustu er súkkulaði og hnetum blandað saman við.
 Sett með teskeið plötu, klædda bökunarpappír. 
 Bakað við 200° hita þangað til þeir eru ljósbrúnir og þurrir í gegn.