Kartöflurnar eru soðnar þar til þær eru meyrar, þ.e. þegar auðvelt er að stinga prjóni í gegnum þær.
Kældar og síðan skornar í tvennt í jafna helminga, þeir holaðir að innan með skeið og sett í skál og stappað. Öðru sem á að fara í fyllinguna blandað saman við og hrært vel. Salta aðeins og pipra.
Hræran sett í kartöflubátana og þeim raðað á álpappír á bökunarplötu.
Grillað í ofni í 6-8 mínútur. Gætið vel að hvað tímanum líður svo að þær brenni ekki.
Má líka bera fram með grænmetisréttum og eða salati.