Eplakaka

3.0/5 hattar (4 atkvæði)

Ingredients

  • 3 dl hveiti
  • 2 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 1/2 dl sykur
  • 1 1/2 dl mjólk
  • 50 g smjörlíki
  • 4 epli
  • 1/2 msk kanill
  • 2 msk sykur

Directions

  1. Blandið saman öllum þurrefnunum. Bræðið smjörið og blandið því í mjólkina og vætið í með því.
    Hellið deiginu í smurt mót. Flysjið eplin, skerið kjarnhúsið úr og skerið eplin í báta og leggið ofan á deigið í mótinu, stráið kanilsykri yfir.
    Bakið kökuna við ca 200° hita í  30-­35 mín.
    Berið kökuna fram með þeyttum rjóma og jafnvel góðri sultu.