Blaðlaukurinn þvegin vel og skorinn í fremur þunnar sneiðar.
Smjörið brætt á pönnu og lauknum bætt út í. Varast að hitni of mikið. Látinn mýkjast í ca 2 mínútur.
Eggin þeytt vel saman og mjólkinni hrært saman við, kryddað með salti og pipar og hellt út á laukinn. Hrært aðeins í svo að laukurinn dreifist vel.
Hitinn lækkaður enn frekar og lok sett á pönnuna. Kakan látin stífna í 5-8 mínútur.
Borin fram heit með saxaðri steinselju, parmesean osti og góðu brauði.