Aðalbláber eru best í þessa uppskrift. Þau eru þvegin, sett í sigti og vatnið látið drjúpa vel af þeim. Látin í pott í lögum með sykri eftir smekk. Soðið í 15-20 mínútur. Sett strax í heitar krukkur og lokað vel. Þetta mauk er best að geyma í kæli.