Margir leita til Leiðbeiningastöðvar heimilanna þegar mikið stendur til svo sem Fermingar, skírnir, brúðkaup, stórafmæli og útskriftir. Algengasta spurningin er hversu mikið á að áætla af mat fyrir hvern. Þar kemur „Magn á mann“ skjalið góða sem er að finna á forsíðu www.leidbeiningastod.is.í góðar þarfir. það er að finna hér til hliðar undir Skjöl til útprentunar.
Nú er algengt að bjóða upp á allskyns gómsætar súpur sem aðalrétt. Við höfum tekið eftir að nú er mexikósk kjúklingasúpa ein af þeim algengari sem við heyrum af. Margar útgáfur til af þeirri súpu, þú finnur eina á síðunni okkar.
Þegar súpa er sem aðalréttur er miðað við um 4-5 dl af súpu á mann, sem svipar til tveggja venjulegra súpudiska en hver venjulegur súpudiskur tekur um 2,5 dl af súpu. Í mexikóska kjúklingasúpu má miða við um 100 gr af kjúkling á mann og 50-60 gr af grænmeti á mann. Þetta viðmið má nota fyrir hvaða kjöt eða grænmetissúpu sem er.
Margir leita til Leiðbeiningastöðvar heimilanna þegar mikið stendur til svo sem Fermingar, skírnir, brúðkaup, stórafmæli og útskriftir. Algengasta spurningin er hversu mikið á að áætla af mat fyrir hvern. Þar kemur „Magn á mann“ skjalið góða sem er að finna á forsíðu www.leidbeiningastod.is.í góðar þarfir. Það r að finna hér til hliðar undir Skjöl til útprentunar.
Nú er algengt að bjóða upp á allskyns gómsætar súpur sem aðalrétt. Við höfum tekið eftir að nú er mexikósk kjúklingasúpa ein af þeim algengari sem við heyrum af. Margar útgáfur eru til af þeirri súpu, þú finnur eina á síðunni okkar.
Þegar súpa er sem aðalréttur er miðað við um 4-5 dl af súpu á mann, sem svipar til tveggja venjulegra súpudiska en hver venjulegur súpudiskur tekur um 2,5 dl af súpu. Í mexikóska kjúklingasúpu má miða við um 100 gr af kjúkling á mann og 50-60 gr af grænmeti á mann. Þetta viðmið má nota fyrir hvaða kjöt eða grænmetissúpu sem er.
Ef súpan er mjög matarmikil má reikna með minna magni á mann. Alltaf þarf þó að hafa í huga aldursamsetningu gesta. Börn borða líklegast ekki mikið meira en einn disk eða um 2,5 dl af súpu.
Þegar boðið er upp á súpu sem aðalrétt þarf líka að hafa í huga meðlætið sem á að bjóða með henni. Er boðið upp gott brauð með? Eða jafnvel osta líka og álegg? Þá er líklegra að hver og einn borði minna af súpu.
Hér eru nokkrar súpu uppskriftir sem þú finnur á síðunni okkar