Þessa matvöru má frysta

AvacadoTil að koma í veg fyrir að maturinn lendi í ruslinu er ráð að frysta hann.  Avacadó, ferska tómata, ost, rjómaost, smjör, hvítlauk, chili og banana má frysta.

Til að koma í veg fyrir að maturinn lendi í ruslinu er ráð að frysta hann.  Avacadó, ferska tómata, ost, rjómaost, smjör, hvítlauk, chili og banana má frysta.

Avacadó, fjarlægðu stein og hýði og skerðu það í 2 til 4  bita og pakkaðu í plastfilmu og settu í plastbox. Gott ráð er að mauka það og frysta í litlum skömmtum.

Hvítlaukur: þornar hvítlaukurinn hjá þér og fer að spíra? Skiptu lauknum í geira og taktu utan af honum. Það er auðvelt að skera hann þó hann sé frosin og nota í mat.

Chili: áður en hann þornar í ísskápnum er tilvalið að skella honum heilum í frysti og geyma þar til þú þarft á honum að halda.

Tómatar: skerðu þá í báta, settu í box og  frystu. Auðvelt er að taka þá út og setja í heita réttinn næst þegar að þú þarft að nota tómata, það má þá sleppa tómatmaukinu ef það er í uppskriftinni.

Bananar: þá er tilvalið að frysta, það má frysta þá í hýðinu, heila í bitum eða mauka. 

Ostur: vill enginn borða endastykkin? Safanðu þeim saman í frystinum og rífu hann niður næst þegar að þú ætlar t.d. að búa til pizzu. Það er líka gott ráð að rífa hann niður jafnóðum, þá áttu alltaf til rifinn ost í frysti.

  • Sunday, 10 maí 2015