Steikið nautahakkið á pönnu þar til brúnt. Sigtaðu fituna frá.
Setjið hakkið í hægeldunarpottinn, blandið svo lauknum, Sellerý, grænni papriku, tómatpúrru, nýrnabaunum og Cannelini baunum saman við. Kryddið með kryddunum.
Setjið lokið á og eldið í 8 klukkustundir á lægstu stillingu.
Tilvalið að gera klárt í pottinn að kvöldi áður en farið er að sofa,(geyma i ísskáp yfir nóttina með plastfilmu yfir) skella svo hægeldunarpottinum í gang að morgni og láta malla fram að kvöldmat.
Berið fram með hrísgrjónum, salati og góðu brauði eða bara eitt og sér. Ljúffengt eftir góðan dag.
Sjá hér grein um matseld í hægeldunarpottum
JJ/2017