Ananasfrómas

4.4/5 hattar (11 atkvæði)

Ingredients

  • 5 egg
  • 2 1/2 dl flórsykur
  • 4 dl rjómi
  • 450 g niðursoðinn ananas (ein hálfdós)
  • safi úr einni sítrónu, frekar stórri
  • 1 1/2 dl ananassafi
  • 8 matarlímsblöð

Directions

  1. Eggin og flórsykur þeytt saman þangað til þau verða að léttri ljósri froðu.
    Rjóminn þeyttur sér.
    Matarlímsblöðin lögð í bleyti í kalt vatn þangað til þau mýkjast og þá er vatnið kreist úr þeim.
    Ananassafinn settur í skál, út í hann fer matarlímið og skálin sett í vatnsbað í pott og látið leysast upp við vægan hita þangað til það er alveg kekkjalaus. Þarf að hræra vel í á meðan.
    Eggjahræru og rjóma blandað saman og matarlíminu hellt í einni bunu og hrært vel. Sítrónusafanum er að lokum bætt út í. Að síðustu er smátt brytjuðum ananas bætt út í. 
    Frómasinum hellt í fallega skál, plastfilma breidd yfir og hann geymdur í kæliskáp í ca 6-8 klst.

    Upplagt er að skilja eftir 2-3 ananassneiðar til að skreyta frómasinn með áður en hann er borinn fram eins er fallegt að skreyta með smávegis af þeyttum rjóma.