Ungversk horn

0.0/5 hattar (0 atkvæði)

Ingredients

  • 25 g ger (eða ½ pk þurrger)
  • 2 ½ dl nýmjólk
  • 25 gr sykur
  • 1-2 tsk salt
  • 25 g smjör eða smjörlíki (brætt)
  • ca 400 g hveiti

Directions

  1. Gerið er leyst upp í volgri mjólk ásamt sykrinum í stórri skál, þangað til það byrjar að freyða.
    Þá er salti og bræddu smjöri bætt út í.

  2. Mjölinu bætt út í smátt og smátt þangað til deigið verður meðfærilegt. Þá er því skipt í 3 hluta, hver hluti flattur út í kringlótta köku sem skorin er í 8 geira (eins og pissusneiðar).

  3. Hverri sneið rúllað upp í horn, byrjað á breiðasta endanum. Sett á plötu með mjóa endan niður. Penslað með eggi sem hefur verið hrært út með smá af köldu vatni.

  4. Bakað í forhituðum ofni á 260° í ca 12 mínútur.

    Borin fram með smjöri, osti eða ávaxtamauki.
    Má frysta.