Lummur

3.0/5 hattar (10 atkvæði)

Ingredients

  • 6 dl hveiti
  • 2 msk hrásykur
  • 2 dl haframjöl
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk vanillusykur
  • 1-2 egg
  • ½ dl matarolía
  • ca 4 dl mjólk
  • 1 dl rúsínur eða súkkulaðirúsínur (dökkar)

Directions

  1. Mjólk, olía og egg þeytt létt saman í skál. Þurrefnum blandað út í og hrært þangað til deigið er kekkjalaust. Bakað í feiti á vel heitri pönnu og borið fram með strásykri og/eða sultu.