Laxabaka

2.0/5 hattar (2 atkvæði)

Ingredients

  • Bakan
  • 250 g kalt smjör eða smjörlíki
  • 250 g hveiti
  • ½ tsk salt
  • ¼ tsk hjartarsalt
  • 1 ¼ dl sýrður rjómi
  • Fylling
  • 250 g soðinn lax beinlaus lax
  • 250 g heill asparagus, niðursoðinn eða ferskur
  • 2 dl aspargussoð
  • 1 dl rjómi
  • 2 msk smjör eða smjörlíki
  • 2 msk hveiti
  • ¼ tsk paprikuduft 1/8 tsk hvítur pipar
  • 100 g frekar feitur ostur

Directions

  1.  

    Bökuskelin
    Smjörið skorið í flögur og þurrefni hnoðuð í. Síðast er sýrða rjómanum hnoðað saman við. Þetta má vera lauslega hnoðað saman. Deiginu er þrýst í botninn á eldföstu formi og upp með börmunum.
    Bakað í 10 mín við 180° hita.

  2. Fylling
    Smjörið brætt og bakaður upp jafningur með hveiti, aspargussoði og rjóma. Kryddað.
    Laxinum blandað í í litlum bitum út í jafninginn. Sett ofan á bökuskelina. Aspargusinn er lagður fallega ofan á og að síðustu er ostinum stráð yfir.

    Bakað í ofni í 10-15 mín. Þangað til osturinn er orðinn gullinn á litinn. Hiti 180-200°