Hálfmánar II

3.3/5 hattar (3 atkvæði)

Ingredients

  • 500 g hveiti
  • 250 g strásykur
  • 200 g smjör eða smjörlíki, lint
  • 1/2 tsk hjartarsalt
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 egg
  • 1 dl mjólk
  • 1/2 tsk kanill
  • 1 msk koníak, ef vill
  • Sveskjusulta

Directions

  1. Þurrefnum blandað saman í hrærivélaskál, það auðveldar verkið að hnoða það í vél fremur en í höndum.
    Smjöri, eggi bætt út í og hnoðað og vætt í með mjólkinni eftir þörfum.
    Gott er að geyma deigið um stund á köldum stað.
    Flatt út á hveitistráðu borði og stungnar út kökur undan glasi. Ein teskeið af sultu eða svo sett á hverja köku, þær lagðar saman og brúnunum lokað með því að þrýsta með gafli á þær.

    Bakaðar við 200° hita þar til þær eru ljósbrúnar.
    Ath hálfmánar geymast mjög vel.