Gratinerað blómkál

0.0/5 hattar (0 atkvæði)

Ingredients

  • 1 vænt blómkálshöfuð
  • Bechamelsósa
  • 3 msk smjörlíki
  • 3 msk hveiti
  • 3 ½ dl mjólk (gott að hita hana aðeins)
  • ca 1 dl blómkálssoð
  • salt
  • hvítur pipar
  • ögn af rifinni múskatrót eða dufti
  • smá hvítlaukssalt (ef vill)
  • 50 g rifinn ostur (frekar feitur)
  • 1 msk parmasanostur (ef vill)
  • Ostur til að strá yfir í lokin.

Directions

  1. Blómkálið er skolað vel úr köldu vatni. Skorin þunn sneið neðan af stilkinum, stt í heilu lagi í pott og soðið í léttsöltuðu vatni í ca 10-15 mínútur, eða þangað til kálið er meyrt.
    Gæta þess að ofsjóða ekki. Tekið upp með spaða og sett í smurt eldfast mót með háum kanti.
    Ath. að geyma ca 1 dl af soðinu í sósuna. 

  2. Sósa
    Búin til uppbökuð sósa þ.e. smjörið brætt og hveitinu jafnað í. Þynnt smám saman með mjólk og  soði. Kryddað eftir smekk og látið malla í 7-10 mín. Ostinum bætt út í og látin bráðna.
    Sósunni er síðan hellt yfir blómkálið og osti stráð yfir, t.d. gratin osti.
    Bakað í ofni við 220° hita þar til osturinn tekur á sig lit. 

    Uppskrift: Doris Briem.